Starfsmannafundur - lokum kl. 15:00 í dag

Í dag, miðvikudaginn 15. mars, verður lokað fyrr en venjulega á skrifstofum félagsins vegna starfsmannafundar sem hefst kl. 15:00 í sal félagsins á Akureyri.

Við lokum því kl. 15:00 miðvikudaginn 15. mars 2023. 

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Hægt er að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is

Minnum einnig á að Eining-Iðja hefur opnað fyrir Mínar síður þar sem félagsmenn geta m.a. sótt rafrænt um þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði. Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskráninguna þá er starfsfólk félagsins boðið og búið að aðstoða ykkur. Félagsmenn, skoðið vel og lagið ef þarf bankaupplýsingar, símanúmer og netföng.