Starfsdagar Vinnustaðareftirlitsfulltrúa

Hér má sjá Magnús Smára bera upp fyrirspurn á starfsdegi eftirlitsfulltrú2 2024. Mynd af vinnan.is
Hér má sjá Magnús Smára bera upp fyrirspurn á starfsdegi eftirlitsfulltrú2 2024. Mynd af vinnan.is

ASÍ stóð fyrir starfsdögum eftirlitsfulltrúa 7. og 8. maí sl. og fóru þeir fram þetta árið í Reykjavík. Magnús Smári Smárason, lögfræðingur og þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju og einn af eftirlitsfulltrúum félagsins, mætti á starfsdagana og segir að dagskrá þeirra hafa verið mjög áhugaverða. 

"Þarna átti sér stað mjög svo áhugavert samtal milli samstarfsaðila um eftirlit á vinnumarkaði. Verið var að fjalla um samstarf opinberra stofnanna, verkalýðshreyfingarinnar og annarra í baráttunni gegn launaþjófnaði, misneytingu launafólks og mansali. Dagskrá þessara daga var áhugaverð og greinilega með það markmið að efla og þróa þetta mikilvæga starf. Boðið var upp á þrjú fróðleg erindi þar sem farið var yfir samstarfið en í þeim kom fram mikilvægi þeirra upplýsinga og gagna sem að vinnustaðareftirlit ASÍ aflar. "

Erindið þrjú sem boðið var upp á fluttu þau Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, Grímur Grímsson, frá miðlægri rannsóknardeild lögreglu og Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar.

Samtal um eftirlit á vinnumarkaði

Á nýjum fréttavef ASÍ, vinnan.is, er fjallað meira um samtalið sem þarna fór fram. Þar segir að í kynningu Gríms Grímssonar hafi komið fram að gott samstarf milli stofnana, verkalýðshreyfingarinnar og sveitarfélaga hafi verið einn af lyklunum að vel heppnaðri lögregluaðgerð í Wokon/Pho-málinu þann 5. mars síðastliðinn.

Þar segir einnig að Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar, hefði lagt áherslu á nauðsyn þess að móta verklag kringum mansalsmál. Mansalsmál eru flókin og krefjast oft aðkomu margra aðila, þar á meðal lögreglu, félagsþjónustu sveitarfélaganna, lögreglu, Vinnumálastofnunar, Útlendingastofnunar og verkalýðshreyfingarinnar. 

Í umræðum um hvað mætti betur fara í samstarfinu var kallað eftir skýrari heimildum aðila til að deila upplýsingum sín á milli. Þröngar skorður um upplýsingaskipti gætu hamlað árangri í baráttunni gegn brotastarfsemi.

Brotalamir eru í eftirliti á landsbyggðinni. Fáliðun verður til þess að erfitt er að sinna eftirliti á vinnustöðum og því mikið tækifæri fólgið í samstarfi milli stofnana og stéttarfélaga á landsbyggðinni, þannig nýtist mannaflinn betur og hægt að manna eftirlitsteymi.