Vert er að benda félagsmönnum á eftirfarandi sem finna má á heimasíðu Stapa.
Á sjóðfélagavef Stapa er að finna margvíslegar upplýsingar. Þar er einfalt að fylgjast með áunnum réttindum, iðgjaldagreiðslum, upplýsingum um lán og ýmislegt fleira.
Hægt að nota rafræn skilríki, Íslykil eða auðkennisappið til innskráningar. Vefurinn er aðgengilegur á íslensku og ensku.
Undirbúðu framtíðina - Skoðaðu réttindi þín til eftirlauna
Eru iðgjöldin þín að skila sér til sjóðsins?
Ertu með lán hjá sjóðnum eða að íhuga húsnæðiskaup?
Gættu þess að skrá rétt netfang í Mínar upplýsingar.