Það er góð regla að bera saman launaseðla og iðgjaldagreiðslur sem koma fram á sjóðfélagayfirliti. Okkar félagsmenn greiða í Stapa lífeyrissjóð og því er vert að benda á eftirfarandi frétt sem birtist fyrr í vikunni á heimasíðu sjóðsins.
Á næstu dögum berast sjóðfélögum Stapa yfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá útsendingu síðasta yfirlits. Yfirlitin eru nú þegar aðgengileg á vef sjóðfélaga.
Stapi brýnir fyrir sjóðfélögum að bera iðgjaldagreiðslur saman við launaseðla. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er áríðandi að tilkynna það til sjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins.
Mikilvægt er að yfirfara hvort launagreiðandi skili inn mótframlagi í samræmi við kjarasamning. Hlutfallstala iðgjalds og mótframlags birtist fyrir aftan nafn launagreiðanda á yfirlitunum. Ef sjóðfélagi er ekki viss um hvert mótframlagið á að vera er rétt að hafa samband við viðeigandi stéttarfélag.
Það er auðvelt að fylgjast með réttindum og iðgjaldaskilum með rafrænum hætti á sjóðfélagavef. Þar er einnig hægt að skoða útsend yfirlit undir Skjöl. Við hvetjum sjóðfélaga til að hjálpa okkur að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni með því að afþakka pappír.
Nánari útskýringar má finna á www.stapi.is/yfirlit þar sem farið er yfir einstaka þætti.
Fjárfestingarumhverfið hefur verið krefjandi síðustu mánuði. Ávöxtun Stapa er meðal umfjöllunarefnis í nýju fréttabréfi sjóðsins en þar eru einnig að finna greinar um breytingar á lögum um lífeyrissjóði sem taka gildi nú um áramótin, nýjan sjóðfélagavef og margt fleira
Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef frekari upplýsinga er óskað. Hægt er að senda beiðni á stapi@stapi.is eða hafa samband við okkur í síma 460-4500 til að fá aðstoð