Vert er að benda félagsmönnum sem greiða í Stapa lífeyrissjóð á eftirfarandi frétt sem birtist nýlega á heimasíðu sjóðsins.
Nú einföldum við birtingu sjóðfélagayfirlita þar sem meginreglan verður rafræn birting á sjóðfélagavef í stað útsendingar í almennum bréfapósti. Þessi breyting er gerð í kjölfar lagabreytingar þar sem lífeyrissjóðum er heimilað að birta yfirlitin með rafrænum hætti.
Síðasta almenna dreifing sjóðfélagayfirlita í bréfapósti var í maí síðastliðnum en með yfirlitinu fylgdi upplýsingablað um breytinguna. Þar kemur m.a. fram að:
Á sjóðfélagavef er alltaf hægt að fylgjast með greiddum iðgjöldum og áunnum réttindum. Þar er einnig að finna áður útsend sjóðfélagayfirlit.
Á sjóðfélagavef er alltaf hægt að fylgjast með greiddum iðgjöldum, áunnum réttindum og skoða áður útsend sjóðfélagayfirlit.
Stapi minnir á mikilvægi þess að bera saman launaseðla og iðjgaldagreiðslur sem koma fram á sjóðfélagayfirliti. Mikilvægt er að hafa samband við sjóðinn ef iðgjöld vantar frá launagreiðanda. Réttindasjóður byggir á þeim greiðslum sem skila sér til sjóðsins.