Stapi - Átt þú lánsrétt hjá sjóðnum?

Vert er að benda félagsmönnum sem greiða í Stapa lífeyrissjóð á eftirfarandi frétt sem finna má á heimasíðu sjóðsins.

Stapi býður verðtryggð lán gegn veði í íbúðarhúsæði í eigu sjóðfélaga. Lánin eru með föstum eða breytilegum vöxtum.

  • Hámarkslán er kr. 75.000.000
  • Við kaup á fasteign miðast lánshlutfall við kaupverð
  • Við endurfjármögnun miðast lánshlutfall við nýjasta fasteignamat
  • Einfalt rafrænt umsóknarferli
  • Upplýsingar um lánsrétt eru á vef sjóðfélaga

Allar upplýsingar um sjóðfélagalán eru á stapi.is en fyrirspurnir má einnig senda á lan@stapi.is.