Stapi - ársreikningur 2024

Á heimasíðu Stapa segir að stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2024. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris um 431 milljarður króna og hækkaði um u.þ.b. 51 milljarð króna frá fyrra ári.

Nafnávöxtun eigna sjóðsins á árinu 2024 nam 11,4% og raunávöxtun sjóðsins 6,3%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ár er um 2,4%.

Greiddir voru tæpir 12 milljarðar króna í lífeyri úr tryggingadeild sjóðsins til um 13.000 lífeyrisþega. Voru þetta um 11,8% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 4,0%.

Alls greiddu tæplega 23.000 sjóðfélagar hjá rúmlega 3.800 launagreiðendum iðgjöld til tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu um 18,8 milljörðum króna og hækkuðu um 6% á milli ára. Fjöldi virkra sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld í mánuði hverjum var um 16.500.

Hrein eign séreignardeildar var 9.700 milljónir króna og hækkaði um 15,2% frá fyrra ári. Séreignardeildin býður upp þrjú ávöxtunarsöfn, Innlána safnið, Varfærna safnið og Áræðna safnið og nam hrein raunávöxtun safnanna 1,8%, 7,5% og 9,2% á árinu. Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar nam 1.064 milljónum króna í lok árs og nam hrein raunávöxtun 5,8%.

Ársreikninginn í heild sinni má finna hér.