Stærstu stéttarfélög og landssambönd á almennum vinnumarkaði taka höndum saman um nýja þjóðarsátt

Á myndinni eru formenn félaganna sem sátu óformlegan fund með Samtökum atvinnulífsins í húsnæði Ríki…
Á myndinni eru formenn félaganna sem sátu óformlegan fund með Samtökum atvinnulífsins í húsnæði Ríkissáttasemjara í dag. Á myndina vantar Eið Stefánsson frá Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna. Mynd af vef SGS.

Fyrsti fundur Samtaka atvinnulífsins, lands­sam­banda og verka­lýðsfé­laga ASÍ hófst í morgun. Um var að ræða óformlegan fund en eiginlegar viðræður um kjaramál hefjast þann 28.desember nk. 93 prósent félaga innan ASÍ eru í samfloti í kjaraviðræðum sem eru að hefjast um þessar mundir. Bjartsýni einkenndi fundinn í morgun, segir á ruv.is.

Á vef SGS segir að íslensk heimili hafa of lengi verið föst í spennitreyju ofurvaxta og óðaverðbólgu, en hætta er á að kjarabætur sem náðst hafa fram í kjarasamningum síðustu ára brenni upp og verði að engu. Það hvernig tekst til við endurnýjun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði eftir áramótin mun skera úr um þetta.

Fulltrúar stærstu landssambanda og stéttarfélaga landsins skynja ákall samfélagsins um farsæla kjarasamningagerð og átta sig á fordæmisgefandi hlutverki kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði.

Formenn Starfsgreinasambands Íslands, Eflingar, Landsambands íslenzkra verzlunarmanna, Samiðnar - sambands iðnfélaga og VR eru sammála um grundvallarnálgun í komandi kjarasamningagerð, en samanlagt fara þessi félög með samningsumboð fyrir rúmlega 115 þúsund manns eða um 93% launafólks innan vébanda ASÍ.

Í sameiginlegri grundvallarnálgun þessara félaga er horft til þess að hófsamar launahækkanir á formi krónutöluhækkana verði bundnar ströngum forsendum um lækkun verðbólgu og vaxta, með það að markmiði að verja og auka kaupmátt launa meirihluta alls launafólks. Nálgunin felur í sér að allir aðilar sem hafa áhrif á afkomu heimilanna axli ábyrgð – fyrirtæki, stjórnvöld og sveitarfélög.

Stjórnvöld verða að leiðrétta stórfellda rýrnun barnabóta, vaxtabóta og húsnæðisbóta síðustu áratugi, en þessar skattfrjálsu bætur eru líflína margra heimila í landinu. Einnig verður að gera löngu tímabærar ráðstafanir til að tryggja öryggi leigjenda og koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn í heild sinni.

Félögin munu skipa sameiginlega samninganefnd, sem verður falið að leiða viðræður við stjórnvöld og SA um heildstæðan langtímasamning byggðan á þessari grundvallarnálgun.