Skrifað undir nýjan samning við Norðurorku

Í gær var skrifað undir undir nýjan kjarasamning Einingar-Iðju og Kjalar stéttarfélags í almannaþjónustu við Samtök atvinnulífsins vegna Norðurorku hf. 

Næsta þriðjudag, kl. 15:30 í matsal starfsmanna, verður samningurinn kynntur fyrir félagsmönnum sem starfa hjá Norðurorku.  Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn er hafin. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki til að geta kosið.

Kjarasamningurinn, sem gildir frá og með 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028, byggir á Stöðugleikasamningum sem undirritaður var milli SA og sambanda og félaga ASÍ í mars 2024. Meginmarkmið Stöðugleikasamningsins er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta, sem er mikið hagsmunamál heimila og fyrirtækja. Jafnframt er markmið samningsins að auka kaupmátt launafólks, skapa fyrirsjáanleika í efnahagslífinu, draga úr verðbólguvæntingum og styrkja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Launahækkanir eru eftirfarandi:

Laun og launatöflur taka hlutfallshækkun, með krónutöluhækkun að lágmarki. Með mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.

  • 1. febrúar 2024: 3,25% eða 23.750 kr.
  • 1. janúar 2025: 3,50% eða 23.750 kr.
  • 1. janúar 2026: 3,50% eða 23.750 kr.
  • 1. janúar 2027: 3,50% eða 23.750 kr.