Skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið

18 aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands, þar á meðal Eining-Iðja, undirrituðu í gær nýjan kjarasamning við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóð og gildir samningurinn frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir þeir samningar sem ríkið hefur gengið frá að undanförnu.

Haldinn verður rafrænn kynningarfundur fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríkinu, fundurinn verður í byrjun næstu viku og verður auglýstur sérstaklega.

Samningnum fylgja nýjar launatöflur og munu laun hækka afturvirkt frá 1. apríl 2024. Samkvæmt launatöflu nýs samnings hækka laun í algengustu launaflokkum SGS um kr. 26.900 frá 1. apríl 2024 og svo árlega um kr. 23.750 fram til ársins 2027. Þá taka persónu- og orlofsbætur hækkunum á samningstímanum, en í lok samningstímans verður persónuuppbót (desemberuppbót) m.v. fullt starf orðin kr. 118.000 og orlofsuppbót kr. 64.000.

Jafnframt var samið um breytingar á ákvæðum varðandi vinnutíma, vaktaálag, fyrirkomulag vaktavinnu og fleira. Nálgast má nánari útlistun á breytingunum sem og nýjar launatöflur hér.

Rafræn atkvæðagreiðsla félagsmanna aðildarfélaga SGS sem starfa samkvæmt kjarasamningnum fer fram dagana 1. til 8. júlí nk. Atkvæðagreiðslan verður kynnt betur og auglýst þegar nær dregur.

Nálgast má frekari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna á upplýsingasíðu SGS um samninginn.