Skráning vinnutíma

Á heimasíðu Vinnueftirlitsins má finna upplýsingar um skráningu vinnutímana starfsfólks, sem er liður í að tryggja öryggi, heilsu og vellíðan á vinnustað. Hvernig er skráningu vinnutímans háttað á vinnustaðnum þínum?

Vinnutími starfsfólks er mikilvægur hluti af skipulagi vinnustaða og þurfa allir vinnustaðir að skrá vinnutíma í hlutlægu, áreiðanlegu og aðgengilegu kerfi innan vinnustaðarins. 

Skráning vinnutíma er mikilvæg fyrir starfsfólk jafnt sem atvinnurekendur enda getur ófyrirsjáanlegt skipulag vinnutíma og mikil yfirvinna haft neikvæð áhrif á líðan starfsfólks.

Kynntu þér reglur um skráningu vinnutíma starfsfólks í 57. gr. a vinnuverndarlaganna

Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins