Skráð atvinnuleysi á landinu öllu var 2,8% í október og var óbreytt frá september. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum um 188 frá septembermánuði. Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi muni ekki breytast mikið í nóvember og vera á bilinu 2,8% til 3,1%.
Á Norðurlandi eystra mældist atvinnuleysið 2,1% í október og jókst úr 1,9% í september.