Félagið minnir á að skilafrestur til að senda inn svör úr krossgátu og getraun sem birtust í síðasta jólablaði félagsins rennur út kl. 16 mánudaginn 9. janúar nk.
Hægt er að senda inn svör á netfangið ein@ein.is, senda þau í pósti á skrifstofuna á Akureyri eða setja þau í póstkassa framan við skrifstofuna á Akureyri.
Vegleg verðlaun eru í boði!