Í apríl 2024 þarf að skila inn umsóknum og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.
Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna aprílmánaðar 2024 fer fram á hefðbundnum tíma en vegna sérstakra aðstæðna þarf að skila gögnum til félagsins í síðasta lagi, mánudaginn 22. apríl, til að ná inn í útborgun mánaðarins. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt mánuði síðar.