Vert er að minna aftur á að í febrúar 2022 þarf að skila inn gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.
Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna febrúarmánaðar 2022 fer fram á hefðbundnum tíma en það þarf að skila gögnum til félagsins í síðasta lagi 20. febrúar nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt mánuði síðar.