Skattabreytingar um áramót

Um áramót tóku gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Á vef Stjórnarráðs Ísland má m.a. finna eftirfarandi upplýsingar um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis.

Breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentum sveitarfélaga um áramótin í kjölfar þess að undirritað var þriðja samkomulag ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.Í breytingunni felst varanleg tilfærsla fjármuna sem nema 5 ma.kr. árlega frá ríki til sveitarfélaga, en nánar er fjallað um þessar breytingar í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Til viðbótar fyrrgreindum breytingum skal samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættu mati á langtímaframleiðni. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir áramótin 2027-2028. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 9,6% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 10,7%. Þróunin er afleiðing breytinga sem gerðar voru á tekjuskattskerfinu á nýliðnu kjörtímabili, en með hækkun skattleysis- og þrepamarka umfram launahækkanir lækka skattar á heimili um 6 ma.kr. á næsta ári. Nánar er fjallað um málið í frétt á vef ráðuneytisins. 

Í töflunni hér að neðan má sjá skattprósentur, skattleysismörk, persónuafslátt og þrepamörk fyrir árin 2022 og 2023, en þær eru birtar með þeim fyrirvara að ekki liggur fyrir endanlegt meðalútsvar. 

Tekjuskattur einstaklinga

2022

2023

Prósenta í 1. þrepi:

31,45% (þar af 14,45% útsvar)

31,45% (þar af 14,67% útsvar)

Prósenta í 2. þrepi:

37,95% (þar af 14,45% útsvar)

37,95% (þar af 14,67% útsvar)

Prósenta í 3. þrepi:

46,25% (þar af 14,45% útsvar)

46,25% (þar af 14,67% útsvar)

Tekjuskattur einstaklinga

2022

2023

 

Á ári

Á mánuði

Á ári

Á mánuði

Þrepamörk upp í miðþrep

4.445.783

370.482

4.919.833

409.986

Þrepamörk upp í háþrep

12.481.275

1.040.106

13.812.143

1.151.012

 

       

Persónuafsláttur

646.993

53.916

715.981

59.665

Skattleysismörk tekjuskattsstofns

2.057.212

171.434

2.276.570

189.714

Skattleysismörk launa*

2.142.929

178.577

2.371.472

197.619

*að teknu tilliti til lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð