Skattabreytingar á árinu 2025

Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Á vef Stjórnarráðs Ísland má m.a. finna eftirfarandi upplýsingar um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis.

Tekjuskattur einstaklinga

Samkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir tekjuárið 2027. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 4,75% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 5,80%. Tekjuskattsprósentan er óbreytt frá fyrra ári sem og hámarksútsvar sveitarfélaga. Vegið meðal útsvar hækkar um 0,01 prósentustig fyrir tekjuárið 2025 og verður 14,94%, sem reiknast út frá útsvarsprósentu sveitarfélaga á árinu 2025 að teknu tilliti til tekjuskattsstofns hvers sveitarfélags.

Í eftirfarandi töflu má sjá skattprósentur, skattleysismörk, persónuafslátt og þrepamörk í kr. fyrir árin 2024 og 2025. 

Tekjuskattur einstaklinga í staðgreiðslu

2024

2025

1. þrep:

31,48% (þar af 14,93% útsvar)

31,49% (þar af 14,94% útsvar)

2. þrep:

37,98% (þar af 14,93% útsvar)

37,99% (þar af 14,94% útsvar)

3. þrep:

46,28% (þar af 14,93% útsvar)

46,29% (þar af 14,94% útsvar)

 

Tekjuskattur einstaklinga

2024

2025

 

Á ári

Á mánuði

Á ári

Á mánuði

Þrepamörk upp í miðþrep

5.353.634

446.136

5.664.062

472.005

Þrepamörk upp í háþrep

15.030.014

1.252.501

15.901.523

1.325.127

Persónuafsláttur 

 779.112

 64.926

 824.288

 68.691

Skattleysismörk tekjuskattsstofns

2.474.942

206.245

2.617.618

218.136

Skattleysismörk launa*

2.578.065

2.578.065

2.726.686

227.225

*að teknu tilliti til lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð.