Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir - skilafrestur umsókna

Vert er að minna á að fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsókn og gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til félagsins í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. 

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef þau koma eftir 24. hvers mánaðar.

ATHUGIÐ! Sækið rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Nýjar Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að sækja um sjúkradagpeninga

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði