Vert er að minna á að fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsókn og gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til félagsins í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í febrúar og desember.
Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.
Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef þau koma eftir 24. hvers mánaðar.
ATHUGIÐ! Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju