Sjálfkjörið í stjórn og trúnaðarráð félagsins

Í hádeginu í gær rann út frestur til að skila inn lista eða tillögum um fólk í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2022-2023. Ekki bárust tillögur eða listar aðrir en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi sem áætlað er að fram fari miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 19:30 í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri.

Anna Júlíusdóttir mun því áfram verða varaformaður félagsins næstu tvö árin. Einnig verður Sunna Líf Jóhannsdóttir áfram meðstjórnandi til næstu tveggja ára.

Skoðunarmenn reikninga til eins árs verða Hrafnhildur Ása Einarsdóttir og Ævar Þór Bjarnason. Varaskoðunarmaður til eins árs verður Ómar Ólafsson.

Mikil ánægja hefur ríkt með félagið, þjónustuna og störf stjórnar félagsins í viðhorfskönnunum sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Á hverju ári sér Gallup um framkvæmd slíkrar könnunar fyrir félagið þar sem 1.500 félagsmenn eru spurðir ýmissa spurninga, m.a. um viðhorf til stjórnar og þjónustu félagsins. Um 96,5% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju, þar af merktu rétt tæplega 82% við að þau væru sátt við félagið. Tæplega 98% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þetta eru mjög svo svipaðar niðurstöður og á síðustu árum.