Vert er að benda félagsmönum á að fjölmörg námskeið eru í boði hjá SÍMEY á haustönn. Í næstu viku, þann 18. september, er m.a. vefnámskeiðið „Vetrarforðinn – grænmetisuppskeran“ á dagskrá.
Nánari upplýsingar um öll námskeiðin má finna á heimasíðu SÍMEY, þar fer skráning einnig fram.
Félagsmenn í nokkrum stéttarfélögunum, m.a. Einingu-Iðju, sækja fjölmörg námskeið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru öllum opin og minnir SÍMEY áhugasama á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.