SÍMEY - námskeið í haust

Í haust býður SÍMEY upp á fjöldamörg námskeið sem eru bæði starfstengd og tengd áhugamálum hvers og eins. Fjölmörg námskeið og námsleiðir eru í boði. Hér er hægt að skrá sig og finna nánari upplýsingar um námskeiðin á heimasíðu SÍMEY

Um er að ræða vefnámskeið og jafnframt 3 staðnámskeið. Byrjað er að taka á móti skráningum.

Félagsmenn í stéttarfélögunum Eining-Iðja, Kjölur og Sameyki sækja fjölmörg námskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnir SÍMEY aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.