SÍMEY - Lífsþjálfun með Erlu

Vert er að benda félagsmönum á að fjölmörg námskeið eru í boði hjá SÍMEY á vorönn. Næsta námskeið hefst 29. janúar nk. en það er vefnámskeiðið Lífsþjálfun með Erlu.

Nánari upplýsingar um öll námskeiðin má finna á heimasíðu SÍMEY, þar fer skráning einnig fram.  

Félagsmenn í nokkrum stéttarfélögunum, m.a. Einingu-Iðju, sækja fjölmörg námskeið sér að kostnaðarlausu.  

Námskeiðin eru öllum opin og minnir SÍMEY áhugasama á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.