Vert er að benda á að síðar í mars hefst í SÍMEY dyravarðanámskeið en hluti af því er einnig endurmenntunarnámskeið fyrir dyraverði. SÍMEY hefur umsjón með námskeiðunum, en þau eru haldin í samvinnu við Einingu-Iðju og lögregluna á Norðurlandi Eystra.
Lágmarksaldur: 20 ár
Skilyrði til þátttöku: Enginn getur gegnt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykkir. Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.
Þar sem námskeiðin og allt námsefni er á íslensku þurfa þátttakendur að hafa færni að lágmarki á stigi A2 skv. Evrópska tungumálarammanum. Hægt er að taka hæfnimat hér.
Umsókn um þátttöku: Fylla þarf út umsókn til lögreglunnar á NE um þátttöku í námskeiðinu og skila til SÍMEY, Þórsstíg 4.
Nauðsynlegt er að skila passamynd með umsókn.
Auk þess þarf að skrá sig með skráningarhnappi hér fyrir neðan.
Aðilar sem eiga eftir að klára hluta námskeiðs þurfa að skila inn nýrri umsókn.
Skráning og nánari upplýsingar á dyravarðanámskeiðið
Skráning og nánari upplýsingar á endurmenntunarnámskeiðið
Skráningarfrestur á bæði námskeiðin er til og með 17. mars.
Athugið að námskeiðin eru opið öllum og hvetur SÍMEY alla til að kanna rétt sinn á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi.
Félagsmenn Einingar- Iðju geta átt rétt á allt að 90-100% endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá starfsmenntasjóðum
Hægt er að hafa samband við Eining-Iðju og kanna sinn rétt.