SÍMEY - 4 FABLAB námskeið á haustönn

Vert er að benda félagsmönnum á að SÍMEY mun bjóða upp á fjögur FABLAB námskeið á haustönn 2024.

Skráning er hafin á heimasíðu SÍMEY
  • 3D prentunarnámskeið, 14. og 15. september
  • Tölvustýrður fræsari, 17., 19. og 21. september
  • Laserskurður, 28. og 29. september
  • Þinn eigin lampi - Hugmynd raungerð!, 5. og 19. október

SÍMEY minnir á að félagsmenn í stéttarfélögunum Einingu-Iðju, Kili og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðin sér að kostnaðarlausu.

Námskeiðin eru öllum opin og hvetur SÍMEY félagsmenn í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.