Fyrr í vikunni undirritaði SGS nýjan kjarasamning við Bændasamtök Íslands. Samningurinn nær til starfsmanna sem vinna við almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Auk þess falla ráðskonur/matráðar á bændabýlum undir samninginn. Samningurinn nær ekki til þeirra starfsmanna sem starfa við ferðaþjónustu eða aðra starfsemi sem fellur ekki undir ofangreinda skilgreiningu. Starfsmenn, sem starfa við ferðaþjónustu í smærri stíl, geta þó fallið undir gildissvið samningsins enda sé það samþykkt af hálfu viðkomandi stéttarfélags.
Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024 og byggir á kjarasamningi SGS og SA sem undirritaður var 3. desember síðastliðinn. Allir launaliðir samningsins taka breytingum í samræmi við kjarasamning SGS og SA.
Samningsaðilar samþykktu að á samningstímanum fari fram viðræður um framtíð og gildissvið samningsins og munu þær hefjast í byrjun október 2023.
Samninginn má nálgast hér.