Á vef SGS segir að um 20 félagsliðar hafi komið saman á fræðsludegi félagsliða sem haldinn var á Fosshótel Reykjavík í síðustu viku. Starfsgreinasamband Íslands og Félag íslenskra félagsliða standa sama fyrir þessum fyrir árlega viðburði sem er fyrir löngu orðinn fastur liður í starfsemi sambandsins.
Að vanda var dagskráin fjölbreytt en að þessu sinni fengu gestir m.a. fræðslu um öryggi og sjálfsvarnir og mikilvægi liðsheildar á vinnustöðum. Þá fór formaður Félags íslenskra félagsliða yfir stöðu félagsliða og starfsemi félagsins og sérfræðingur SGS ræddi um kjarasamninga og stöðuna á vinnumarkaði. Miklar og góðar umræður sköpuðust meðal þátttakenda og ljóst að það ríkir mikill kraftur og góður andi í þessum öfluga hópi.