Segir pass við verðlagseftirliti

FRÉTTIN HEFUR VERIÐ UPPFÆRÐ

Á heimasíðu ASÍ segir að Melabúðin hefur hafnað þátttöku í verðlagseftirliti Alþýðusambandsins. Áður en sú afstaða varð ljós hafði verðtaka verið framkvæmd, síðast í janúar síðastliðnum, en samkvæmt þeirri athugun var Melabúðin 43% dýrari en Bónus að meðaltali þegar tæplega 700 vörur voru skoðaðar. 

Að mati verðlagseftirlitsins er það réttur almennings að vita hve dýr verslun er áður en lagt er af stað til innkaupa og eru því birtar hér niðurstöður á þessum síðasta verðsamanburði sem framkvæmdur var í versluninni. Öll verð til skoðunar hér eru meðalverð frá janúarmánuði 2025. Verðlagseftirlitið hvetur almenning til að nýta sér Nappið, smáforrit verðlagseftirlitsins, til að senda inn verð þar sem verðlagseftirlitið hefur ekki tök á að framkvæma kannanir. 

 

Til að glöggva sig á verðmuninum sem getur verið til staðar er hér listi af vörum sem mestu munar á þegar verð eru borin saman við lágvöruverðsverslanir. Hér er aftur um að ræða verð frá janúarmánuði. 

 

Margar vörur eru á mun lægra verðbili og er meðalverðbil eftir flokkum afar misjafnt. Af þeim sökum er gott að nota Nappið og skanna strikamerki á vörum eða fletta þeim upp til að vita hvað þær kosta í öðrum verslunum. Þannig er hægt að glöggva sig á verði í búðum þótt þær séu ekki með í verðkönnunum. 

Í Hagkaup, verslun sem liggur nær Melabúðinni í verðlagi, var til dæmis örlítið hærra meðalverð á salti og kryddi en í Melabúðinni. Melabúðin var hins vegar með nokkru dýrari snyrtivörur, sykur og fisk. 

UPPFÆRT 20. mars 2025: Vegna yfirlýsingar Melabúðarinnar um verðlagseftirlit

Vegna yfirlýsingar Melabúðarinnar um verðkannanir í gær telur Verðlagseftirlit ASÍ rétt að eftirfarandi komi fram: 

  • Verðtökufólki hefur sannarlega verið vísað á dyr í Melabúðinni áður, þótt öðru sé nú haldið fram. 
  • Í þeim verðsamanburði sem birtur var í gær var aðeins borið saman verð á sömu vörum – vörum sem bera nákvæmlega sama strikamerki. Til dæmis Póló kex frá Frón sem kostaði 729 krónur í Melabúðinni en 298 krónur í Bónus. 
  • Af tæplega 3.000 strikamerkjum sem skönnuð voru í Melabúðinni mátti finna yfir 2.400, eða rúm 80%, í öðrum verslunum sem Verðlagseftirlitið kannar reglulega. Þar af voru 700 til í Bónus, 1.000 í Krónunni, 1.200 í Nettó og tæplega 1.400 í Hagkaup. 
  • Verðlagseftirlit ASÍ leggur ekki mat á gæði, aðeins verð. Neytendum sjálfum er treyst að leggja mat á hvort gæðin séu verðsins virði, en það er réttur fólks að vita hversu dýru verði gæðin eru keypt. 
  • Verðlagseftirlit ASÍ mælir ekki einungis verðmun milli verslana, heldur skoðar einnig verðsögu vara bæði hjá birgjum og verslunum. Þetta þýðir að verð eru skoðuð í mun fleiri verslunum en reglulegar kannanir gefa til kynna. 
  • Það er afstaða Verðlagseftirlitsins að ef verslun getur staðið við sitt verð á kassanum, þá á hún að geta staðið við það opinberlega. Ekki er lagður dómur á réttmæti verðlagningar Melabúðarinnar. Hins vegar er óeðlilegt að farið sé með hana sem leyndarmál.