Fjölmargir sóttu um tvö störf hjá félaginu

Nýlega auglýsti félagið að laus væru til umsóknar tvö störf. Annars vegar var um að ræða starf VIRK ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar og hins vegar starf Verkefnastjóra vinnustaðaeftirlits fyrir Eyjafjarðarsvæðið og Norðurland vestra.

Frestur til að sækja um rann út um helgina og bárust 31 umsókn um ráðgjafastarfið og 23 umsóknir um verkefnastjórastarfið.

Nú er vinna í gangi við að fara yfir umsóknirnar sem eru bæði flottar og fjölbreyttar og taka viðtöl. Stefnt er á að vera búið að ganga frá ráðningum í bæði störfin fljótlega.