Samstarfssamningur milli Einingar-Iðju og FVSA

Eiður og Björn að lokinni undirritun samningsins.
Eiður og Björn að lokinni undirritun samningsins.

Í morgun var skrifað undir samstarfssamning um nýtingu réttinda félagsmanna milli Einingar-Iðju og Félags verslunar- og skrifstofufólks  Akureyri og nágrenni. Það voru Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, og Eiður Stefánsson, formaður FVSA, sem undirrituðu samninginn. Samningurinn mun gilda til að byrja með í eitt ár og verður endurskoðaður mánuði áður en hann rennur út. 

Markmið samstarfsins er að auðvelda félagsmönnum aðgang að þeim réttindum sem þeir þegar hafa öðlast hjá öðru félaginu þegar þeir þurfa að færa sig milli félaga vegna breytinga á starfsvettvangi.

Samstarfið felur í sér samnýtingu iðgjalda félagsmanna félaganna vegna fræðslusjóðs, orlofssjóðs og sjúkrasjóðs félaganna.

Tilgangur samstarfsins er að telja saman réttindi félagsmanns hjá hvoru félaginu, í þeim tilgangi að félagsmaður þurfi ekki að bíða ávinnslutíma réttinda sinna heldur getur nýtt það sem þegar hefur áunnist hjá fyrra félagi og hinu nýja. Núverandi regla um 6 mánaða rétt eftir síðustu greiðslu gildir áfram en annars gildir sú regla að greitt hafi verið a.m.k. samtals 6 mánuði til beggja félaganna. 

Fyrst félaga til að gera slíkan samning
Björn segir að félögin hafi í raun unnið á þessum nótum undanfarin ár en við ákváðum að setja þessar reglur á blað núna. „Ég veit ekki betur en að Eining-Iðja og FVSA séu þar með fyrst félaga innan ASÍ til að gera slíkan samning. Þetta er mikill gleðidagur því með þessu erum við að stíga stórt skref í að tryggja að réttindi fólks detti ekki niður þegar viðkomandi flytur sig á milli félaganna. Ég vona að svona samningur verði gerður við fleiri félög sem fyrst. Samningurinn mun líka verða til þess að við gerum meiri kröfu á að félagsmenn verði í þeim félögum sem hefur samningsumboð fyrir viðkomandi.“ 

Tímamótasamningur
Eiður segir að þetta sé tímamótasamningur. „Þetta gerir félagsmönnum auðveldara að fara á milli félaga og vera í réttu stéttarfélagi sem skiptir gríðarlegu miklu máli. Þá er ég að tala um að vera í því stéttarfélagi sem er með þann kjarasamning sem starfsmaðurinn er að fá greidd laun eftir. Loksins kláruðum við þetta og ég vona að þetta sé upphafið að fleiri svona samningum á milli allra stéttarfélaga.“