Rafrænir kynningarfundir um nýjan samning við sveitarfélögin (Skráning í frétt)

3. júlí 2024 var undirritaður nýr kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitafélaga og gildir samningurinn frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Félagið mun halda þrjá (einum bætt við frá fyrsta plani) rafræna kynningarfundi mánudaginn 8. júlí 2024. Fyrsti fundurinn verður kl. 10:00, næsti verður kl. 14:00 og sá þriðji kl. 17:00.

Fundirnir munu fara fram á Microsoft Teams og þurfa þeir sem ætla að mæta að skrá sig hér svo hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á þann fund sem valinn er. 

  • Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn stendur yfir frá kl. 12:00 föstudaginn 5. júlí til kl. 9:00 mánudagsins 15. júlí. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar sama dag. Hægt verður að greiða atkvæði í gegnum heimasíðu Einingar-Iðju. (Slóð á kosninguna mun birtast á heimasíðu Einingar-Iðju þegar kosning hefst) Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki til að geta kosið.
  • Nálgast má frekari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna hér.