Rafrænir kynningarfundir um nýjan samning við ríkið (skráning í frétt)

25. júní sl. var skrifað undir nýjan kjarasamning við fjármálaráðherra f.h.  ríkissjóð og gildir samningurinn frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Félagið mun halda tvo rafræna kynningarfundi miðvikudaginn 3. júlí 2024. Fyrri fundurinn verður kl. 10:00 og sá seinni kl. 15:00.

Fundirnir munu fara fram á Microsoft Teams og þurfa þeir sem ætla að mæta að skrá sig hér svo hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á þann fund sem valinn er. 

  • Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst mánudaginn 1. júlí kl. 12:00 og lýkur mánudaginn 8. júlí kl. 09:00. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar sama dag. Hægt verður að greiða að greiða atkvæði í gegnum heimasíðu SGS eða viðkomandi stéttarfélags. (Slóð á kosninguna mun birtast á heimasíðu Einingar-Iðju þegar kosning hefst) Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki til að geta kosið.
  • Nálgast má frekari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna á upplýsingasíðu SGS um samninginn.

Hér má sjá frétt um undirskriftina