Rafrænir kynningarfundir í dag um nýjan samning við ríkið (skráning í frétt)

25. júní sl. var skrifað undir nýjan kjarasamning við fjármálaráðherra f.h.  ríkissjóð og gildir samningurinn frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Félagið mun halda tvo rafræna kynningarfundi í dag, miðvikudaginn 3. júlí 2024. Fyrri fundurinn verður kl. 10:00 og sá seinni kl. 15:00.

Fundirnir munu fara fram á Microsoft Teams og þurfa þeir sem ætla að mæta að skrá sig hér svo hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á þann fund sem valinn er. 

  • Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hófst mánudaginn 1. júlí kl. 12:00 og lýkur mánudaginn 8. júlí kl. 09:00. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar sama dag. Hægt verður að greiða að greiða atkvæði í gegnum heimasíðu SGS eða viðkomandi stéttarfélags. (Slóð á kosninguna má finna á heimasíðu Einingar-Iðju) Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki til að geta kosið.
  • Nálgast má frekari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna á upplýsingasíðu SGS um samninginn.

Hér má sjá frétt um undirskriftina