Félagið vill benda á að á skrifstofunni á Akureyri er töluvert af óskilamunum sem komið hafa úr íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu í janúar og febrúar á þessu ári.
Félagsmenn sem kannast við að hafa gleymt einhverju, endilega komið við sem fyrst og athugið hvort þið eigið eitthvað af þessum óskilamunum. Einnig er hægt að hringja á skrifstofuna á Akureyri í síma 460 3609 til að kanna málið.
Föstudaginn 15. mars kl. 16:00 förum við með þessa hluti í Rauða krossinn.