Orlofsuppbót / persónuuppbót 2024

Eining-Iðja vill minna félagsfólk á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu 1. maí eða 1. júní ár hvert.

Veitið því sérstaka athygli hvort þessi greiðsla skili sér ekki örugglega með því að fara yfir launaseðil af kostgæfni. Leiki vafi á að orlofsuppbót hafi verið rétt greidd út eða aðrar spurningar vakna er félagsfólki bent á að hafa samband við trúnaðarmenn á vinnustöðum sínum, eða stéttarfélagið sjálft.  

Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

  • Almennur vinnumarkaður
    • Orlofsuppbót er 58.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Á vef SGS má nálgast reiknivél sem reiknar orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.
  • Ríki
    • Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar og því gildir upphæð frá því í fyrra. Á árinu 2023 var orlofsuppbótin 56.000 kr. miðað við fullt starf.  Uppbótin greiðist 1. júní.
  • Sveitarfélög
  • Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar og því gildir upphæð frá því í fyrra. Á árinu 2023 var persónuppbót 55.700 kr. miðað við fullt starf. Uppbótin á að koma til greiðslu 1. maí ár hvert.

Sjá nánar, m.a. töflur sem sýna upphæð orlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma