Orlofsferðir Einingar-Iðju á árinu 2025

Hjá félaginu starfar ferðanefnd sem undirbýr og skipuleggur ferðir á hverju ári fyrir félagsmenn. Aðalfundur ár hvert kýs fjóra félagsmenn í nefndina, en auk þeirra á formaður félagsins og í forföllum hans varaformaður, sæti í nefndinni. Undanfarin ár hafa verið í boði tvær til þrjár ferðir.

Ferðanefnd félagsins ákvað á fundi árið 2024 að bjóða upp á utanlandsferð annað hvort ár og verður næsta utanlandsferð í boði á árinu 2026. Jafnframt var ákveðið að það ár sem ekki verður boðið upp á utanlandsferð að þá verði boðið upp á veglegri "Fjallaferð."

Á næsta ári verða því í boði tvær ferðir og má nánar lesa um þær hér fyrir neðan. 

Skráning í ferðirnar hefjast um leið og staðfest verð verður birt, en skráning mun fara fram á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð, í síma 460 3600 eða með því að senda póst á netfangið ein@ein.is