Orlofsbókanir færðar á milli kerfa!

Athygli er vakin á því að nú stendur yfir vinna við að færa greiddar orlofsbókanir á milli orlofskerfa. Þannig að allir sem eiga bókaða íbúð hjá félaginu á næstunni fá sjálfvirkan tölvupóst með nýjum samningi  úr nýja kerfinu. Það á eftir að yfirfara ýmsar stillingar og því getur verið að vitlaus upphæð komi fram á nýja leigusamningnum.

Félagsmenn þurfa ekki að hafa samband við félagið vegna þessa, samningurinn er gildur þó svo að röng upphæð komi fram á honum.