Orlofsblaðið er komið á netið

Orlofsblað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er farið í prentun og verður borið út miðvikudaginn 15. mars nk. með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 28 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2023, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.

Í blaðinu er einnig umfjöllum um aðalfundi deilda, Mínar síður, fræðslustyrki, breytingar styrkja úr sjúkrasjóði, greiðslur úr Félagsmannasjóði, orlofsferðirnar og margt fleira.

Opnað verður fyrir umsóknir um sumarúthlutun föstudaginn 10. mars 2023. Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur og orlof að eigin vali á rafrænan hátt í gegnum Orlofsvef félagsins.