Orlofsblaðið er komið á netið

Orlofsblað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er farið í prentun en það verður borið út miðvikudaginn 16. mars nk. með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 28 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2022, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.

Í blaðinu er einnig umfjöllum um aðalfundi deilda, fræðslustyrki, launahækkanir ársins, Félagsmannasjóð SGS, orlofsferðirnar og margt fleira.