Orlof að eigin vali gildir fram til áramóta

Eining-Iðja minnir félagsmenn aftur á að Orlof að eigin vali gildir fram til áramóta. Það þýðir að þeir félagsmenn sem fengu úthlutað fyrr á árinu Orlofi að eigin vali þurfa að koma með reikninga eða farseðla fyrir næstu áramót til að fá endurgreitt.

Félagsmenn gátu sótt um 300 slíka styrki, hver að upphæð kr. 26.000 þó aldrei hærri en 50% af kostnaði, og var styrkloforðum úthlutað eins og orlofshúsunum.

ATH! Framvísa þarf löglega númeruðum vsk. reikningum eða farseðlum!

Sjá nánar