Vegna starfsmannafundar í dag, þriðjudaginn 9. maí, munum við opna skrifstofuna á Akureyri kl. 10:30 og aðeins seinna á Dalvík. Skrifstofan í Fjallabyggð er með breyttan opnunartíma þessa dagana og mun því opna kl. 13:00.
Hægt er að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is
Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.
Við bendum á Mínar síður á heimasíðu félagsins. Þar geta félagsmenn skráð sig inn og séð ýmsar upplýsingar um sig sem félagið hefur, séð punktastöðu sína, skoðað og sótt um orlofshús og séð greiðslur frá félaginu. Einnig getur félagsmaður nú skoðað og sótt um rafrænt þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.