Vetrarleiga - Opnað til áramóta þann 1. ágúst nk.

Vegna fjölda fyrirspurna er vert að minna á að kl. 12:00 á hádegi þann 1. ágúst nk. verður opnað fyrir bókanir á orlofshúsum og íbúðum næsta vetur. Vetrarleigan hefst í byrjun september og stendur til loka maí ár hvert.  

ATH! þar sem unnið er að innleiðingu nýs félaga- og orlofskerfis fyrir Einingu-Iðju (Tótal) verður haustið 2024 einungis hægt að bóka eignir til að byrja með til áramóta (þ.e. fram yfir jóla- og áramótavikurnar).

Bókanir fara fram á orlofsvef félagsins.

Vetrarleigutímabilið hefst 1. september og stendur til loka maí, en þá eru boði orlofshús á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði, Húsafelli og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu.