Opnað fyrir vetrarleiguna kl. 12:00 í dag

Í dag, þriðjudaginn 1. ágúst, kl. 12:00 á hádegi, verður opnað fyrir bókanir á orlofshúsum og íbúðum næsta vetur. Vetrarleigutímabilið hefst 1. september og stendur til loka maí, en þá eru boði orlofshús á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði, Húsafelli og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu.

Auðveldast er að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað verður hægt að hringja á skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta hús eða bústað. 

  • Vetrarleigan hefst í byrjun september og stendur til loka maí ár hvert.
  • Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.
  • Ekki þarf að sækja um jól og páska, en einungis eru vikuleigur í boði.

Þeir sem áhuga hafa á að leigja hús á Einarsstöðum er bent á að hafa samband við staðarhaldara í síma 861 8310 milli kl. 9 og 16 virka daga eða senda tölvupóst á einarsstaðir@simnet.is, en hann sér um að leigja út hús á tímabilinu 1. október til 1. maí. Varðandi tímabilið 1. til 31. maí 2024 þá verður hægt að leigja á því tímabili í gegnum orlofsvef félagsins.

Auðveldast er að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins til að fá aðstoð.