Opið fyrir umsóknir um orlofskosti sumarsins

Búið er að opna fyrir umsóknir á netinu vegna orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar. Upplýsingar um hvað er í boði má finna á orlofshúsasíðu félagsins og þar er einnig sótt um. Síðasti skiladagur umsókna er þriðjudagurinn 5. apríl, en úthlutun fer fram nokkrum dögum síðar.

ATHUGIÐ! Einungis er hægt að senda inn rafræna umsókn í gegnum Orlofshúsavefinn. Hægt er að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum í síma eða á korti. Ef þú lendir í vandræðum við að senda inn umsókn getur þú fengið aðstoð á skrifstofum félagsins.

Verðskrá

  • Þeir sem fá úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 3. maí 2022.
  • 10. maí 2022 kl. 10:00 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Ekki bara hús í boði
Að venju geta félagsmenn sótt um „Orlof að eigin vali,“ og keypt ferðaávísun (Sjá nánar hér) sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. Þá verður enn og aftur boðið upp á að kaupa Veiðikortið og Útilegukortið á sérkjörum. Kaupa þarf kortin í gegnum Orlofshúsavefinn, þá sendist pöntun til viðkomandi söluaðila sem senda kortin til félagsmanna. 

Gæludýr
Gæludýr eru stranglega bönnuð í öllum húsum félagsins. Dæmi eru um að slæm ofnæmistilfelli hafi komið upp og því er komið inn í leigusamning að leigutaki skuldbindur sig til að borga kr. 25.000 sekt ef þessi regla er brotin.

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

ATH! Við afbókun fæst inneign. sem hægt er að nýta síðar. Einungis er endurgreitt vegna veikinda, andláts eða vegna óveðurs/ófærðar skv. viðvörun Veðurstofu Íslands.

Frádráttur orlofspunkta er mismunandi eftir tímabilum og eftir því hvað er leigt. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 24 punktar í frádrátt:
    • Fyrir fyrstu tvær og síðustu sumarvikuna.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir aðrar sumarvikur