Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar var stofnaður árið 1983 til minningar um Eðvarð Sigurðsson, for…
Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar var stofnaður árið 1983 til minningar um Eðvarð Sigurðsson, formann Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Sjóðurinn er í umsjá Alþýðusambands Íslands.

Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til rannsókna og útgáfu verkefna sem varða sérstaklega íslenskan vinnumarkað, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar.

Hámarksfjárhæð einstakra styrkja er 1 milljón króna. Umsóknir um styrkinn þurfa að berast fyrir 15. apríl en úthlutað er úr sjóðnum 1. maí ár hvert.

Nánari uppýsingar um minningarsjóðinn og eyðublað til umsóknar má finna hér.