Opið fyrir leigu á Einarsstöðum 2. maí til 3. júní 2022 í gegnum orlofsvefinn

Vetrarleiga orlofshúsa hefst í byrjun september og stendur til loka maí ár hvert og fer fram í gegnum orlofsvef félagsins. Hvað varðar fjögur hús félagsins á Einarsstöðum þá hefur staðarhaldari séð um leigu á tímabilinu 1. október til 1. maí.

Hvað varðar tímabilið 2. maí til 3. júní 2022 þá er nú búið að opna fyrir leigu á því í gegnum orlofsvef félagsins.

Helgarleigan er á kr. 17.000.- og vikuleigan er kr. 30.000.-