Nýr VIRK ráðgjafi ráðinn

Katla Hildardóttir var ráðin í starfið og mun hún hefja störf hjá félaginu þann 1. mars nk.
Katla Hildardóttir var ráðin í starfið og mun hún hefja störf hjá félaginu þann 1. mars nk.

Nýlega auglýsti félagið að laust væri til umsóknar starf ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar og bárust 31 umsókn um starfið. 

Ráðningarfyrirtæki, ásamt VIRK fulltrúm úr Reykjavík og fulltrúum frá félaginu, sá um allt ferlið og bauð nokkrum umsækjendum í viðtöl. Að lokum var ákveðið að ráða Kötlu Hildardóttur hjúkrunarfræðing og markþjálfa í starfið. Síðastliðin þrjú ár hefur hún starfað sem ráðgjafi hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands. Hún mun hefja störf hjá félaginu þann 1. mars nk. 

Eining-Iðja býður Kötlu velkomna í starfsmannahópinn.

VIRK
Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Ráðgjafar VIRK starfa hjá Einingu-Iðju samkvæmt samningi við VIRK. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekanda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar.