Katla Hildardóttir hóf störf hjá félaginu í dag. Hún var ráðin úr hópi 31 umsækjanda sem sóttu nýlega um stöðu ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar. Hún verður með aðsetur á Akureyri og er með netfangið katla@ein.is
Eining-Iðja býður Kötlu velkomna til starfa hjá félaginu.
Á Eyjafjarðarsvæðinu starfa fjórir ráðgjafar hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, þær, Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Katla, Kristín og Nicole. Þær eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu. Þær eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Ráðgjafar eru með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík á þriðjudögum og á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð á miðvikudögum. Eining-Iðja fær endurgreitt frá VIRK allan kostnað vegna starfsmanna félagsins sem eru ráðgjafar á sviði starfsendurhæfingar, þar á meðal vegna launa og húsnæðis.
Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is
VIRK
Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Ráðgjafar VIRK starfa hjá Einingu-Iðju samkvæmt samningi við VIRK. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekanda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar.