Nýr verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits

Ríkarð Svavar Axelsson var ráðinn í starfið og mun hann hefja störf hjá félaginu þann 1. febrúar nk.…
Ríkarð Svavar Axelsson var ráðinn í starfið og mun hann hefja störf hjá félaginu þann 1. febrúar nk.

Nýlega auglýsti félagið að laust væri til umsóknar starf Verkefnastjóra vinnustaðaeftirlits fyrir Eyjafjarðarsvæðið og Norðurland vestra og bárust 23 umsóknir um starfið. 

Ráðningarfyrirtæki, ásamt fulltrúum frá félaginu, sá um allt ferlið og bauð nokkrum umsækjendum í viðtöl. Að lokum var ákveðið að ráða Ríkarð Svavar Axelsson í starfið. Síðastliðin ár hefur hann starfað hjá Húsasmiðjunni og Wurth. Hann mun hefja störf hjá félaginu þann 1. febrúar nk. 

Eining-Iðja býður Ríkarð velkominn í starfsmannahópinn.

Nánar um starfið
Nokkur stéttarfélög sem eru starfandi í Eyjafirði og á Norðurlandi vestra gerðu með sér samkomulag árið 2016 um stóraukið vinnustaðaeftirlit með því að ráða einn sameiginlegan starfsmann fyrir svæðið. Ríkarð tekur við starfinu af Vilhelm sem gegnt hefur því frá upphafi og mun starfa fyrir 11 stéttarfélög, hann verður með aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri en skipuleggur og fer í vettvangsferðir á vinnustaði á samningssvæðinu sem er Eyjafjörður, Skagafjörður og Húnavatnssýslur.

Markmið vinnustaðaskírteina og eftirlits á vinnustöðum er að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Samráðsnefnd ASÍ og SA hefur veitt sérstökum eftirlitsfulltrúum heimild til að annast eftirlit og hafa þeir rétt skv. l. nr. 42/2010 til aðgangs að vinnustöðum og heimild til að krefja atvinnurekanda og launamenn hans um að sýna vinnustaðaskírteini. Skulu þeir skrá niður upplýsingar og senda áfram til opinberra aðila s.s. RSK og Vinnumálastofnunar.