Nýr þjónustufulltrúi í Fjallabyggð

Þórey var ráðin í starfið og mun hún hefja störf hjá félaginu þann 15. júní nk.
Þórey var ráðin í starfið og mun hún hefja störf hjá félaginu þann 15. júní nk.

Nýlega auglýsti félagið að laust væri til umsóknar starf þjónustufulltrúa á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð og bárust átta umsóknir um starfið.

Ráðningarfyrirtæki, ásamt fulltrúum frá félaginu, sá um allt ferlið og bauð fjórum umsækjendum í viðtöl. Þórey Sigurjónsdóttir var að þeim loknum ráðin í starfið og mun hún hefja störf 15. júní nk.

Eining-Iðja býður Þóreyju velkomna í starfsmannahópinn.